Lok félagsskiptagluggans ?

  • Skrifað af Daniel Fonseca fyrir meira en 504 vikur

    Hvenær lokar glugginn ? Sé að það stenfur í reglunum hér til vinstri að hann loki 15 júlí. En svo sé ég núna að nýjustu skiptin eru alveg 4 ágúst, Hvaða steypa er það? Af hverju kemur ekkert frá stjórn varðandi þetta ?

    undarlegt.....

  • Skrifað af Áreitni_ fyrir meira en 503 vikur

    \"Frétt skráð 18.07.2014 kl. 19:57

    ÁRÍÐANDI

     

    Stjórnin vill benda þeim félögum sem eiga eftir að klára að greiða fyrir Polar Beer deildina að gera það fyrir lok þessarar viku. Ef einhverjar spurningar eru er netfangið hjá stjórninni 11utandeildin@gmail.com.

     

    Einnig viljum við benda á að félagsskiptaglugginn verður opinn til 23:59 þann 31.júlí.

     

    Stjórn\"

     

    Í 2.gr í reglum deildarinnar má sjá þetta:

    \"Félagaskipti nýs leikmanns verður að tilkynna með 5 daga fyrirvara til þess viðkomandi leikur teljist löglegur.\" 

     

  • Skrifað af Áreitni_ fyrir meira en 503 vikur

    Sem sagt, ef þú tilkynnir félagaskipti 31.júlí. Þá teljum við 31.júl, 1.ág, 2.ág, 3.ág,

    4.ág....

Til að leggja eitthvað til málanna þarf notandi að vera innskráður