Skrifað af kappsamur fyrir meira en 536 vikur
Sælir stjórnarmenn.
Hvenær þarf að skrá lið í utandeildina fyrir sumarið? Hvað var nú aftur mótsgjaldið í fyrra mikið? Verður sama gjald í ár? Hvenær verður haldin fundur?
Kær kveðja,
Helgi
Skrifað af gunnarstjorn fyrir meira en 532 vikur
Skráning í Polarbeer-deildina sumarið 2014 er hafin, Skráning fer þannig fram að forráðarmenn liðanna senda póst á netfangið gunnarstjorn@gmail.com þar sem að nafn forráðamanns og nafn félags kemur fram. Kostnaður við þáttöku liggur ekki fyrir en stemt er að því að hafa hann þann sama og í fyrra. Allar nánari upplýsingar má finna á utandeildin.is.
Aðalfundur Polarbeer deildarinnar verður haldin þann 20.febrúar næstkomandi klukkan 20:00 á Kringlukránni. Þar verður farið yfir deildarfyrirkomulag sumarsins og kosin ný stjórn og/eða nýir stjórnarmenn. Mjög mikilvægt er að allir forráðarmenn félagana mæti á fundinn. Nánari upplýsingar má finna inná http://utandeildin.is.
__________
Fótboltakveðja.