Skrifað af dreki324738746873 fyrir meira en 714 vikur
Dragon-SÁÁ 1-0 í algjörum lykilleik fyrir toppbaráttuna. Drekinn skoraði snemma. Í seinni hálfleik duttum við of mikið aftur og hættum að spila fótbolta og getum í raun þakkað geðveikri vörn og markvörslu fyrir stigin 3. Drekinn kominn í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2005. Sérdeilis glæsilegt það.
Hjörleifur - Hönd Mídasar ???? Vinsamlegast komið með tölur.
Annars sýnist mér að það verði alveg blóðug barátta á milli SÁÁ og KH um síðasta sætið í playoffsinu....
Skrifað af gaui fyrir meira en 714 vikur
2-2 jafntefli
Skrifað af HM2010 fyrir meira en 714 vikur
Dragon er ekki pottþétt í úrslitakeppnina ennþá. Ef SÁÁ vinnur KH og KH vinnur hina tvö leikina sem þeir eiga eftir þá gæti Dragon setið eftir ef þeir tapa eða gera jafntefli við Norðurál. En þessi barátta um fjögur efstu sætin í B-riðli er fáranlega spennandi ! :)
Skrifað af colgate fyrir meira en 714 vikur
rosalega spennan i b riðilinum. og rosalegt að sáá hafi ekki náð að skora i gær
Skrifað af joi81 fyrir meira en 714 vikur
verð að óska dragon til hamingju með sigurinn enn það var ótrúlegt að við skildum ekki skora í gær aldrei séð markvörð í utandeildinni verja svona eins og í gær, enn svona er þetta ...
Skrifað af AriJons fyrir meira en 714 vikur
Já Orri átti stórleik milli stangana í gær.