Skrifað af simmi fyrir meira en 705 vikur
Hvaða lið að ykkar mati er besta liðið sem hefur spilað í Utandeildinni undanfarin ár ?
Skrifað af addorri fyrir meira en 705 vikur
Ögni.
Skrifað af Snýta fyrir meira en 705 vikur
Ef menn hafa smá minni þá þyrfti ekki að spyrja svona.....
Elliði og V.Júpíters....... það þarf ekki að velta því neitt fyrir sér
Skrifað af vignir fyrir meira en 705 vikur
FCCCP LANG BESTA LIÐIÐ
LIFI SOVIET UNION
Skrifað af Norberto fyrir meira en 705 vikur
Fegurðarkóngarnir í Vængjum Júpíters og gömlu feitabollurnar í Elliða eru langbestu lið undanfarinna ára.
Skrifað af Sjöan fyrir meira en 705 vikur
Kumho, FCCCP, Vængir og Elliði eru sterkustu lið undanfarin ár.
Skrifað af Bebatoff fyrir meira en 705 vikur
Elliði og Vængir. Liggur alveg fyrir. Þessi lið nánast búin að einoka titlana undanfarin ár. Kunmo reyndar skákaði þeim í fyrr. Eins voru CCCP sterkir en það eru samt orðin alveg 4-6 ár síðan.
Skrifað af Double Rainbow fyrir meira en 705 vikur
Elliði hét Tekk áður en þeir breyttu nafninu og voru búnir að ná mjög góðum árangri undir því nafni í nokkur ár. Þeir fá mitt atkvæði.
Skrifað af kappsamur fyrir meira en 705 vikur
Frá upphafi !!
FC-Kiddi,,,, FC-CCCP,,,, Ögni,,, Hvíti Riddarinn... Spilað með þeim öllum !!
kveðja,
Helgi
Skrifað af kappsamur fyrir meira en 705 vikur
auðvitað elliði og vængir júppa líka
Skrifað af joi81 fyrir meira en 705 vikur
kappsamur hvernig getur ÖGNI talist vera með eitt af bestu liðum síðastliðin ár búnir að vera 2 ár í deildinni og aldrei unnið neitt..
Skrifað af kappsamur fyrir meira en 705 vikur
Hahaha æðislegt hvað menn eru alltaf fljótir upp ;)......Ætli ég sé ekki bara að svara fyrir framtíðina :)
Annars finnst mér skrítið að engin skuli minnast á Hvíta Riddarann annar heldur en ég!!! Klárlega yfirburðarlið meðan þeir voru í deildinni.. Væri gaman að sjá þá smala aftur í sinn mannskap og koma aftur í deildina.. Jóar og steini ég mana ykkur!!!
kveðja,
HElgi