Skrifað af shakonarson fyrir meira en 668 vikur
Er ekki málið að hreinsa svolítið til hérna á síðunni, setja inn leikjaumfjallanir núverandi tímabils og uppfæra úrslit. Það er gaman að fylgjast með á síðunni ef upplýsingar eru up to date en þegar þetta er svona þá missir maður áhugann. Koma svo keyrið þetta í gang.
Skrifað af Legend fyrir meira en 668 vikur
Finnst að leikjaumfjallanir megi mæta afgangi, nema þá kannski um leiki í úrslitum og undanúrslitum. Mörg lið sjá um það sjálf og skrifa fína pistla um leikina. Það er töluverð vinna að mæta á alla leiki og skrifa síðan umfjöllun um hvern og einn. Frekar henda inn upphitun fyrir hverja umferð eða uppgjöri í lok umferða, þar sem stiklað er á stóru yfir það markverðasta sem gerðist (t.d. óvænt úrslit, markahæstu menn, leikbönn o.fl.).
En sammála því að það má hreinsa aðeins til á síðunni, t.d. er úrslita-flipinn er orðinn nokkuð gamall.
Skrifað af fcice fyrir meira en 668 vikur
Skrifað af fcice fyrir meira en 668 vikur
Við stjórn förum í þetta að laga til í síðunni...
Rétt úrslit eru á leikir linknum...
Við þurfum bara að fara vel yfir síðuna og laga aðeins til í henni...
Upphitanir....Og svol Við gerum bragabót á því og vonandi verður það komið í lag á næstunni.
kv.Stjórnin.
Skrifað af Armando fyrir meira en 668 vikur
Við í Skelli ætlum að vera duglegir að fjalla um og vekja athygli á sjálfum okkur í sumar, það væri gaman að fá að vita hvernig og hvert við eigum að senda efni svo það birtist hér á síðunni.
Svo ef þið hafið ekkert að gera megið þið alveg kíkja á þetta video sem við gerðum eftir leikinn í gær, við stefnum á að gera sem mest af einhverju svona löguðu. http://www.youtube.com/watch?v=9X67c-Hjop4
Skrifað af harr fyrir meira en 668 vikur
Afhverju er ekki búið að setja inn leik sáá og duffa ?
Skrifað af logi fyrir meira en 668 vikur
hvernig fóru leikirnir sem eru búnir og ekki eru komnir inn
Skrifað af gaui fyrir meira en 668 vikur
Ögni vs Sáá 2-0
Dragon Hjölli 0-1
Skrifað af Legend fyrir meira en 668 vikur
En hvernig fór Elliði - Kærastan Hans Ara ?
Skrifað af gaui fyrir meira en 668 vikur
4-1 fyrir Elliða..
erum að prúfa nyja dómara svo það gengur aðeins illa fá úrslitinn inn
en vonandi að við náum að henda þeim öllum inn um helgina.
kv
Gaui
Skrifað af 5*stunna fyrir meira en 668 vikur
Ég vil hrósa nýja dómaranum sem dæmdi leik Ögna og SÁÁ. Hann stóð sig með prýði og virðist vera á svolítíð öðru level-i en hinir dómararnir sem hafa verið að dæma, með fullu virðingu fyrir þeirra starfi. Leikurinn var grófur og hefði auðveldlega getað farið í algjöra vitleysu hefði verið haldið öðruvísi um taumana. Vonandi fáum að sjá aðeins meira af honum.
Kv. Ögni #10